Þarf að taka dómara í heilaskönnun?

Manni fer að falla allur ketill í eld yfir þeim fáránleika sem virðist birtast í niðurstöðum hinna ýmsu dóma nú um stundir.

Það liggur fyrir og hefur verið sannað margoft að fjármálafyrirtækun margbrutu af sér og blekktu,  en-  nei þú skalt samt borga uppí topp allt sem þeir blekktu þig til að fá að láni á upplognum forsendum af þeirra hálfu, og fyrir liggur að þau komu í bakið á þér skellihlægjandi um leið og þú snerir þér frá þeim. Hentu nánast gaman af þessum fíflum sem verið var að narra.

Einkennilegt að okkar umdeildu Bandaríkjamenn virðast líta allt öðruvísi á svona svik.

Íslenskur dómari mundi líklega bara úrskurða þetta síðasta hálf-íslenska svikamál þar,  sem frjálsan samning milli aðila, og blessaður auðmaðurinn hafi alveg getað passað sjálfur uppá að ekki væri verið að plata hann! Honum hafi verið nær hefðu íslenskir dómarar svellkaldir dæmt, eða hvað?

En auðvitað er ekki búið að dæma í því máli, en miðað við hörkulega framgöngu gegn meintu afbrotafólki virðast USA menn ekki í vafa hver er brotlegur!


mbl.is Losna ekki við skuldbindingar þrátt fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er alveg stórundarlegt svo ekki sé meira sagt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2010 kl. 13:52

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið nei þetta er ekki undarlegt því að dómarar eru tengdir mafíunni það er orðið ljóst fyrir löngu!

Sigurður Haraldsson, 10.11.2010 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband