Kjánahópur!

Einu sinni var ég sjálfur svona heimskur að halda þetta sama, allavega að það skaðaði engan að halda sig við hin meintu "kristnu gildi".  En augu mín hafa opnast fyrir bullinu í þessu. 

 Aðalmálið er í dag að hafna öllum trúarbrögðum sem áhrifavaldi í stjórnmálum og stjórnsýslu. Fólk má hafa þetta fyrir sig ,hver og einn í einrúmi ,sem og bundist samtökum að ráða predikara og koma sér upp húsnæði til trúariðkunar.

Þyrfti samt helst að ná alheimssátt um að hvergi, - ég ítreka hvergi , megi blanda þessum misvísandi sannleika saman við rekstur samfélaga. Einnig þarf að tryggja að hver og einn einstaklingur taki ákvörðun um aðild að slíku trúariðkunarfélagi á upplýstum forsendum hins þroskaða einstaklings , en ekki á forsendum heilaþvottar frá barnæsku.

Bullið í þessu fólki að verið sé að banna Gideonélögum að afhenda unglingum Nýja testamentið. Þeir geta einfaldlega mætt á heimili hvers og eins og fengið heimild foreldra til að afhenda viðkomandi sitt eintak. Eða bara póstlagt á hvern og einn.


mbl.is Starfshættir grunnskóla skuli mótast af kristinni arfleifð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér þvílíkt bull. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2011 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband