Óhræsið-Óhræsisstjórnin.

Samnefnt kvæði Jónasar Hallgrímssonar kemur uppí hugann þegar maður hugsar til þeirrar ólánsstjórnar sem hefur komið á daginn að við sitjum uppi  með eftir hrun.

Niðurlag þess kvæðis er eftirfarandi:

Elting ill er hafin,

yfir skyggir él.

Rjúpan vanda vafin,

veit sér búið hel.

Eins og álmur gjalli

örskot veginn mæli ,

fleygist hún úr fjalli,

að fá sér eitthvert hæli.

 

Mædd á manna besta,

miskunn loks hún flaug.

Inn um gluggan gesta,

guðs í nafni smaug.

-úti garmar geltu

gólið hrein í valnum-.

kastar hún sér í keltu

konunnar í dalnum.

 

Gæðakonan góða 

grípur fegin við

dýri dauðamóða-

dregur háls úr lið.

Plokkar,pils upp brýtur

pott á hlóðir setur.

segir, happ þeim hlýtur

og horaða rjúpu étur.

 

Samlíkingin finnst mér sláandi,  við hrakta og smáða þjóð sem í skelfingu sinni yfir skefjalausri dýrkun fjármagns og útrásarvíkinga þess , í stjórnartíð VALSINS (Fálkans) , flýgur í fang GÆÐAKONUNNAR Gráu góðu að eigin mati , og Vinstri Grænu alþýðuhetjunnar og verndara lítilmagnans ,lofandi skjaldborg heimilanna fyrst og fremst. En er snaggaralega snúin úr hálsliðnum fjárhagslega í þágu gráðuga fjármagnsins, hvers eignarréttur er víst öðrum eignarrétti æðri.

 

Svei þeirri ÓHRÆSISSTJÓRN!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er alveg sammála. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.5.2011 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband