Breyttir tímar?

Fyrir réttum 20 árum gerðum við hjónin, undir forystu konu minnar tilraun til að ryðja þessum rekjanleika afurða landbúnaðarins braut.  Þetta kom fram í frétt í Degi þann 6. október 1992. 

Það var ekki að sökum að spyrja að þetta naut í upphafi ekki mikils stuðnings og var af vanefnum gert . Fengum við hjónin margar góðlátlegar glósur vegna þessa , en þó alveg innan þeirra marka sem maður þoldi vel, og frumkvöðlar mega oft þola.  Fréttum af eldri kollegum okkar austan við Vaðlaheiði sem voru hálffroðufellandi af vandlætingu yfir þessari vitleysu. Þetta yrði bara til vandræða fyrir framleiðendur .

Síðan hefur ýmislegt breyst og ekki lengur hlegið að þessu sem betur fer, enda augljóslega í þágu neytenda, og án ánægðra neytenda er ekki gaman að framleiða!


mbl.is Rekjanlegt lambakjöt að austan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er satt Kristján, það er ekki alltaf tekið fagnandi svona nýjum sjónarmiðum.  En þetta á að vera svona allstaðar, þannig að góðir bændur fái betur borgað fyrir kjötið en skussarnir, þetta á líka að eiga við um smábátana.  Það verður einhvern daginn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband