Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Grein Hjalta Hugasonar!-Jákvætt eða neikvætt trúfrelsi.

Það þykir líklega mörgum komið nóg af þrasinu um trúarbragðafræðslu og/eða trúboð í skólum. Ég er einn af þeim sem fylgst hefur með þessu þrasi ,sem virðist mest á misskilningi byggt, allavega miðað við tilefnið, semsagt fyrirhugaða breytingu á grunnskólalögum ,þar sem orðið kristið siðferði er fellt niður , og í stað þess er orðalag sem inniheldur í raun allt sem  þetta s.k. kristna siðferði felur í sér og kannske rúmlega það! Er að skilja á forsvarsmönnum kirkju okkar ,að við kristnir höfum einkarétt á því að tileinka okkur góð og uppbyggileg gildi í heimi hér!

Prófessor í guðfræði ,Hjalti Hugason ræðir þetta mál í grein í Morgunblaðinu í gær undir fyrirsögninni "Jákvætt eða neikvætt trúfrelsi.  Hann er greinilega mun skynsamari en margur annar ,leikur eða lærður, sem tjáir sig um málefnið. Þrátt fyrir að Hjalti sé efins um ýtrustu óskir samtaka hinna "trúlausu" um algjört bann við allri trúariðkun í skólum , þá hefur hann greinilega meira umburðarlyndi gagnvart viðhorfum minnihlutahópa í þessum efnum, en margur prelátinn sem nánast vill úthrópa Siðmennt fyrir frekju og yfirgang gagnvart hinum kristna meirihluta!

   "Í ljósi umræðu síðustu vikna um samstarf kirkju og skóla og ýmis mál sem því tengjast má spyrja hvort aðstæður séu raunverulega slíkar í íslensku samfélagi að ástæða sé til að hverfa frá hefð hins jákvæða trúfrelsis. Það virðist alls ekki augljóst. Það skal þó játað að trúfrelsi kallar þá sem þess njóta til ábyrgðar og  leggur þeim þær skyldur á herðar að neyta þess ekki til að hefta frelsi annarra eða gera lítið úr skoðunum þeirra. Þetta er vert að hafa í huga þar sem samfélög eru mjög einsleit trúarlega líkt og gerist hér á landi þar sem allur þorri þjóðarinnar tilheyrir evangelísk-lútherskum kirkjum. Þar verður að gæta þess að þrengja ekki um of að trúarlegum eða trúlausum minnihlutahópum. Þá skiptir stærð þeirra raunar ekki máli nema hugsanlega í þá veru að því minni sem minnihlutinn er því mikilvægara sé að réttindi hans séu tryggð. Það má gera með ýmsu móti en mest ríður þar á almennri tillitsemi og gagnkvæmri virðingu. Neikvætt trúfrelsi þarf hins vegar ekki að vera nærtækasta lausnin þótt hún virðist skilvirk."

Þetta finnst mér vera mergurinn málsins. Því miður hef ég ekki aðgang eða kunnáttu til að sækja greinina í heild sinni hér inn til tilvitnunar, en kannske aðrir geti bætt úr!


Meirihlutayfirgangur!Er það grunnurinn að kristnu siðgæði?

Maður gæti haldið það eftir að hafa hlýtt á og lesið pistla ýmissa stjörnufréttamanna,ritstjóra og annarra , jafnt leikra sem lærðra ,sem hafa tjáð sig um breytt orðalag í frumvarpi , þar sem lagt er til að afnema beina tengingu við kristna trú,eftir athugasemdir tiltekins hóps.

Það er varla hægt að ímynda sér að sumir þessara skríbenta hafi leyft sér að staldra við og hugsa ,áður en þeir sendu frá sér vitleysuna!

Réttur fólks til að ákveða hverju það trúir eða trúir ekki verður ekki af því tekinn með meirihlutaákvörðunum . Sum réttindi eru þess eðlis að meirihlutaákvarðanir fá ekki afnumið þau. Allavega ekki í siðuðum samfélögum.

Komið nú út úr miðaldamyrkrinu svo maður þurfi ekki að skammast sín fyrir að vera alinn upp í kristnum sið!  Sið sem meirhluti þjóðarinnar er skráður fylgjandi á forsendum ónógs valfrelsis gegnum tíðina.

 Sið sem á sínum tíma var lögákveðinn fyrir þjóðina og hefur því óréttmætt forskot á aðrar lífsskoðanir.  Hvar er samkeppnisráð?


Bjóðum Framsókn og Íhald velkomin í skóla og leikskóla Vors lands. Látum Þingmenn þeirra uppfræða ungdóminn og kenna hverjum er best treystandi!

Hver er munurinn á þessu og því að þjóðkirkjuprestar hafi aðgang að skólum til trúboðs?

Framsóknarflokkurinn er jú elsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar og hefur ráðið hér lögum og lofum ásamt þeim stærsta Sjálfstæðisflokknum, hátt í eina öld.

Hverjir eru verðugri til að uppfræða ungdóminn um framsóknarleg íhaldsgildi, sem hafa jú komið þjóðinni á þann stað sem við erum stödd í dag!   BEST Í HEIMI!

Þar fyrir utan hafa langflestir landsmenn til skamms tíma trúað best á boðskap þessara flokka, sem hlýtur að gefa þeim rétt umfram aðra!

Það væri bara hatrömm frekja minnihlutans ,ef aðrir , s.k. smáflokkar færu að amast við þessu!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband