Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Baugssilfur FL-okksins

Fyrir sjóði sviku þjóð,

sína í hendur tröllunum.

Sjálfstæðir með saklaust blóð,

og sagðir koma af fjöllunum.

 

Baugi háðir Björn og Dabbi,

Baugsmiðla samt níddu löngum.

Þóttust vilja þá í drabbi,

þegar kæmi fram að göngum.

 

 

 


Keyptir! Mútað?

Þá er það orðið opinbert sem margan hefur grunað að blessaðir mennirnir hafa engar hugsjónir en eru til sölu fyrir hæstbjóðendur.

Vonandi átta þessi 25-30% þjóðarinnar ,sem hefur látið þennan flokk svíkja út stuðning, með kjaftæði um eigið fjámálavit og stjórnvisku,  að hér er keisarinn endanlega orðinn klæðlaus, semsagt allsnakinn.

 


mbl.is 30 milljóna styrkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndir Sjálfstæðismanna um stjórnlagaþing! Að það starfi skv. fyrifram gefinni formúlu frá alþingi?

Mátti skilja af málflutningi Kristjáns Þórs Júlíussonar og Tryggva Þórs Herbertssonar á fundi sem ég sat með þeim í dag.

Ég er svoleiðis gáttaður á viðhorfum sem þessum. Það skín í gegn að engum sé treystandi fyrir stjórnarskrárvinnu nema útvöldum þingtengdum aðilum.

Vilja að stjórnlagaþing verði aðeins ráðgefandi og að það styðjist við fyrirframgefna punkta sömdum á alþingi, um það hvað ný stjórnarskrá megi innihalda!

Er hægt að vera firrtari í sjálfsáliti og rembingi gagnvart þjóð sinni?

Hví ættum við að velja svona menn til þingsetu? Menn sem treysta okkur hinum ekki til stjórnlagagerðar, en ætlast til trausts frá okkur til hins sama? 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband