Hvað heldurðu að það kosti ríkissjóð?
22.4.2007 | 02:33
Er algengt að spurt sé þegar flokkar og frambjóðendur kynna hugmyndir sínar um hækkun skattleysismarka! Hér er verið að snúa hlutunum við ! Ríkið verður að sníða sér stakk eftir vexti, og þarfirnar í ýmsum félagsmálapökkum hljóta að minnka eftir því sem minna er hirt af matarpeningum fólks í ríkishítina!
Spyrja á fyrst hvað borgararnir hafi efni á að greiða til samneyslunnar án þess að komast á vonarvöl og þurfi að fara að þiggja "ölmusu" til baka !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er nú eiginlega lágmark, að færa mörkin upp þannig að persónuaflsátturinn leiðréttist í takt við vísitölur....
Það hlýtur að vera hægt að framkvæma það nokkuð skammlaust...
Eiður Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 03:34
Rétt athugað hjá þér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2007 kl. 11:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.