Bjóðum Framsókn og Íhald velkomin í skóla og leikskóla Vors lands. Látum Þingmenn þeirra uppfræða ungdóminn og kenna hverjum er best treystandi!

Hver er munurinn á þessu og því að þjóðkirkjuprestar hafi aðgang að skólum til trúboðs?

Framsóknarflokkurinn er jú elsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar og hefur ráðið hér lögum og lofum ásamt þeim stærsta Sjálfstæðisflokknum, hátt í eina öld.

Hverjir eru verðugri til að uppfræða ungdóminn um framsóknarleg íhaldsgildi, sem hafa jú komið þjóðinni á þann stað sem við erum stödd í dag!   BEST Í HEIMI!

Þar fyrir utan hafa langflestir landsmenn til skamms tíma trúað best á boðskap þessara flokka, sem hlýtur að gefa þeim rétt umfram aðra!

Það væri bara hatrömm frekja minnihlutans ,ef aðrir , s.k. smáflokkar færu að amast við þessu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband