"Móðuharðindi af mannavöldum".

Þekkt ummæli  frá sjöunda áratug síðustu aldar rifjast upp eftir að hafa upplifað þau ósköp sem hafa gengið yfir fjármálaheiminn og hvað sterkast hér á landi.

Minnir að Karl Kristjánsson þáverandi framsóknarþingmaður og þingeyingur hafi átt þessi fleygu orð um ráðslag Viðreisnarstjórnarinnar s.k. , einhverntíman þegar að kreppti í efnahagsmálum.

Hefur verið sem við manninn mælt, að hverju sinni sem Seðlabankastjórinn okkar hefur opnað munninn hefur harðnað enn frekar á dalnum, sem bætist við meinta vanrækslu þar á bæ við að halda skikk á málum.

Blessuð útrásin þarfaðist auðvitað betra aðhalds og eftirlits ásamt með girðingum sem hefðu hamlað gegn stjórnlausu gambli sem nú er að koma bönkunum á kné.

Hvernig dettur svo Forsætisráðherra okkar í hug að lýsa yfir  að þessi Seðlabankastjórn njóti fyllsta trausts?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvernig dettur svo Forsætisráðherra okkar í hug að lýsa yfir  að þessi Seðlabankastjórn njóti fyllsta trausts?

Segi það með þér.  Hann er gjörsamlega rúin trausti nema þeirra heilaþvegnustu í Sjálfstæðisflokknum, sem þora ekki að skipta um skoðun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2008 kl. 11:18

2 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Manni detta  nú eiginlega bar í hug tvö orð að heyra svona yfirlýsingar á þeim bænum!  

Ósvífni og heimska!

Kristján H Theódórsson, 14.10.2008 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband