Held að Brynjar ætti að tala sem minnst !
11.10.2010 | 16:23
Fulltrúi þeirrar stéttar sem er áskrifandi að sjálftöku fjár um víðan völl. Sérstaklega lunknir við að smyrja ofan á skuldir þeirra sem eiga nógu erfitt fyrir með að standa í skilum.
Þessi óþurftarmaður sem gekk í lið með stjórnvöldum og peningaöflunum að "leiðbeina" Hæstarétti til að komast að þeirri niðurstöðu í vaxtamálum s.k. myntkörfulána sem jafna má við réttarmorð. Algjörlega útúr kú í lögfræðlegum skilningi um samningsrétt og ólögmæti afturvirkra gerninga ,sem og auðvitað beint í mótsögn við skýr fyrirmæli laga um neytendarétt.
Horfum framhjá áliti svona spekinga sem þekkja ekkert réttlæti nema sem hleður undir þeirra eigin rass. 25 þúsund á tímann lágmark í laun, að vísu með vsk. og hamast gegn hagsmunum venjulegs launafólks en gengur erinda þeirra afla sem vilja enn og aftur blóðmjólka alþýðuna til ávinnings fyrir sig og sína.
Á kostnað hvaða annarra ætti það svosem að vera ,að loftbóluhagnaður verði afskrifaður? Loftbóluhagnaður sem var uppdiktaður með svikum og prettum!
Þetta kostar einhverja aðra en ræningjalýðinn nákvæmlega ekki neitt!
Brynjar: Hættið að gefa óraunhæfar væntingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.