Óhræsið-Óhræsisstjórnin.
27.5.2011 | 11:40
Samnefnt kvæði Jónasar Hallgrímssonar kemur uppí hugann þegar maður hugsar til þeirrar ólánsstjórnar sem hefur komið á daginn að við sitjum uppi með eftir hrun.
Niðurlag þess kvæðis er eftirfarandi:
Elting ill er hafin,
yfir skyggir él.
Rjúpan vanda vafin,
veit sér búið hel.
Eins og álmur gjalli
örskot veginn mæli ,
fleygist hún úr fjalli,
að fá sér eitthvert hæli.
Mædd á manna besta,
miskunn loks hún flaug.
Inn um gluggan gesta,
guðs í nafni smaug.
-úti garmar geltu
gólið hrein í valnum-.
kastar hún sér í keltu
konunnar í dalnum.
Gæðakonan góða
grípur fegin við
dýri dauðamóða-
dregur háls úr lið.
Plokkar,pils upp brýtur
pott á hlóðir setur.
segir, happ þeim hlýtur
og horaða rjúpu étur.
Samlíkingin finnst mér sláandi, við hrakta og smáða þjóð sem í skelfingu sinni yfir skefjalausri dýrkun fjármagns og útrásarvíkinga þess , í stjórnartíð VALSINS (Fálkans) , flýgur í fang GÆÐAKONUNNAR Gráu góðu að eigin mati , og Vinstri Grænu alþýðuhetjunnar og verndara lítilmagnans ,lofandi skjaldborg heimilanna fyrst og fremst. En er snaggaralega snúin úr hálsliðnum fjárhagslega í þágu gráðuga fjármagnsins, hvers eignarréttur er víst öðrum eignarrétti æðri.
Svei þeirri ÓHRÆSISSTJÓRN!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já ég er alveg sammála.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.5.2011 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.