90 ár frá fćđingu móđur minnar!

Fyrir réttum 90 árum, ţann 19. júní 1918  fćddist í Krossadal lćgri viđ utanverđan Tálknafjörđ,afskekktu býli viđ ysta haf,  móđir mín ,Guđmunda Finnbogadóttir.  Hún var nćstyngst í stórum systkinahópi, en alls voru ţau 10 .  Föđur sinn missti hún tćplega 5 ára gömul, og leystist ţá heimiliđ upp eins og oft gerđist.  Hún var ţó svo lánsöm ađ fá ađ fylgja móđur sinni ásamt yngsta bróđurnum í vistum á ýmsum bćjum í firđinum .

Síđar lá leiđin til Patreksfjarđar viđ hin ýmsu störf og á húsmćđraskóla á Ísafirđi og ađ endingu í Eyjafjörđinn, ţar sem hún kynntist föđur mínum á ţví herrans ári 1946.  Gengu ţau í hjónaband 22. desember s.á. sem greinir í 100 ára minningu hans hér fyrr á ţessum bloggvettvangi.

Í Eyjafirđi "fram", á Ytri-Tjörnum, Freyvangi og Tjarnalandi var hennar starfs- og lífsvettvangur úr ţví nćstu tćp 50 árin, ţar sem hún ól og kom til manns 10 börnum viđ skilyrđi sem í dag ţćttu ekki bođleg . Húsnćđisţrengsli og oft ekki úr miklu ađ spila á tímum skömmtunar og hafta margskonar.

Aldrei minnist ég ţó svengdar eđa hafa liđiđ fyrir erfiđar ađstćđur ,og mun ţađ engum  frekar ađ ţakka en ţessari hversdagshetju sem fćddist á sjálfan kvennadaginn 1918,er 3 ár voru liđin frá ađ íslenskar konur fengu kosningarétt. Hún lést á Kristnesspítala ţann 4. ágúst 1996.

Afkomendurnir eru orđnir hátt á sjötta tuginn og ćtla ţeir ađ koma saman ásamt mökum á niđjamóti í Freyvangi núna um helgina til ađ minnast ţeirra.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársćlsson.

Til hamingju međ afmćlisdag móđur ţinnar frćndi.

Níels A. Ársćlsson., 19.6.2008 kl. 22:57

2 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Kćrar ţakkir frćndi!

Kristján H Theódórsson, 19.6.2008 kl. 23:08

3 Smámynd: Sigurjón Ţórđarson

Eigiđ ánćgjulega helgi í um helgina í Freyvangi,

Sigurjón Ţórđarson, 20.6.2008 kl. 09:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband