Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þvílík MEGAFÍFL er þetta fólk!

Ef að þessar hálfvita/fábjána/glæpa hugmyndir verða að veruleika er ekki um annað að ræða en gera áhlaup á stjórnarráðið og bera þessi kvikindi út!

Að láta sér detta í hug að upphækkun höfuðsstóls lána, af völdum hörmulegs og glæpsamlegs stjórnarfars, geti verið skattstofn þegar og ef þau verða lagfærð nær fyrra og eðlilegu horfi!

Við hljótum að spyrja Jó-Grímsfíflin! Hvaða ávinning höfðum við af þessari bólgu sem kom í lánin okkar? Og hvernig nýttist það okkur til fjárhagslegs hagræðis? Finnum við þetta einhversstaðar á bankareikningum?


mbl.is Afskriftir verða skattlagðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér þarf að segja stórt STOPP!

Ganga hreint til verks og beinlínis banna með ótvíræðum og skýrum lögum alla bónusa og skylda umbun í bankakerfinu.

Rökstuðningur fyrir slíku banni er augljós, við súpum seyðið af þessháttar rugli í dag!

 


mbl.is Fulltrúar bankanna spurðir út í bónuskerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið væri nú gott !!!!

Að satt væri!  

 Því óneitanlega væri skárra að Steingrímur og co gerðu ekki nokkurn skapaðan hlut frekar en alla þá vitleysu sem þau hafa afrekað.  Vísast þar til Icesave-klúðursins og þeirra skemmdarverka sem Jó-Gríma hafa unnið í því máli. 

Svo maður nefni ekki afrekin í bankamálunum, að  nánast siga þeim illræmdu stofnunum á saklausan almenning með innheimtuhörku gagnvart ofvöxnum skuldbindingum sem þeir sömu bankar eru búnir að fá afskrifaðar að stórum hluta.

Er ekki einhversstaðar tekið á svona framkomu í dæmisögum Jesú?

Hvað segja kirkjunnar menn um það. 

 Einhver slordóninn fékk eftirgefna skuld hjá lánadrottni sínum , hitti fyrir náungann, sem skuldaði honum sjálfum lítilræði og greip fyrir kverkar honum óðara með kröfu um fulla greiðslu! (er aðeins farinn að ryðga í biblíusögunum).


mbl.is Þreyttur á þessu kjaftæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur yfirgefi VG !!!!!

og leiði breiðfylkingu gegn hverslags heimsku og spillingu í stjórnun landsins.  Þar verði baráttan gegn bankamafíunni og skuldaþrælkun almennings í þágu fjármagnsins í boði núverandi og fyrrverandi stjórna,   sett á oddinn. Ásamt með endurheimt auðlindanna til lands og sjávar!

Kúgunarstjórnmál að hætti Davíðs, Halldórs, Geirs, Ingibjargar og nú síðast Jóhönnu og Steingríms verði aflögð!

Stjórnarsamstarf á ekki að byggjast á auðsveipni þingmanna stjórnarflokka við misvitra foringja sína sem gjarnan skeyta hvorki um skömm né heiður, né hvort þeirra eigin framganga samrýmist stefnumálum eigin flokka eða kosningaloforðum!


mbl.is Til í sæti á réttum forsendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðaðar þjóðir!

Greiða víst umyrðalaust þegnum sínum út innistæður í bönkum óreiðumanna ,sem hafa lent í þroti, og senda síðan þriðja aðila reikninginn og fylgja eftir innheimtunni af hörku!

Skv. nýverðlaunuðum stjörnublaðamanni í Silfri Egils í dag!

Tökum þær þjóðir til fyrimyndar ,og ætlum okkur jafnframt góða fúlgu í hagnað af innheimtunni!

E.S.

Reyndar má segja að okkar stjórnvöld séu á þessu siðaða plani. Topptryggðu innistæður í íslenskum bönkum og senda þriðja aðila, skuldurum sérstaklega og öðrum skattgreiðendum þessa lands reikninginn þar sem ekkert verður gefið eftir, meðan stóreignamennirnir þakklátir brosa allan hringinn!


Málið er svo einfalt!

En ótrúlega stór hópur fólks hefur látið blekkjast af ruglanda bulli Jóhönnu og Steingríms og ómerkilegustu fylgifiska þeirra.

Rökin fyrir nauðsyn þess að mæta á kjörstað og segja NEI ,eru eins og forsetinn bendir á, að annars halda lögin um heimild fjármálaráðherra til að ábyrgjast þessar óréttmætu skuldbindingar á ríkissjóð þegar honum hentar.  Viðsemjendur , Bretar og Hollendingar , vitandi afstöðu þeirra stjórnar-hjúanna, munu að sjálfsögðu ekki seinna en strax kippa að sér hendinni með frekari og betri tilboð. Að sjálfsögðu ,ítreka ég! 

Heldur íslensk þjóð að það búi hálfvitar í stjórnarráðum annarra þjóða  þótt við búum við þau ósköp?


mbl.is Ólafur Ragnar búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilög þrenning heimskunnar!

Þrennt í fréttum dagsins sem mér ofbýður.

ÓBREYTTIR STÝRIVEXTIR. Hvílíkur skaðvaldur sem þessi blessaður Seðlabanki er og hefur verið. Er ekki möguleiki að fá nema einhver megafífl til að stjórna þessari stofnun?

RAGNAR ÖNUNDARSON TELUR SIG SAKLAUSAN AF AFBROTUM FYRIRTÆKIS SEM HANN STJÓRNAÐI! Hvar er ábyrgð stjórnenda? Þessi sem þeir vilja fá svo mikið borgað fyrir?

ANNAR AF NÝJU RITSTJÓRUM MOGGANS. Bara verði þeim að góðu !

Annars býð ég bara góðar stundir og líklega langt bless!


Stjórnarforkólfar veruleikafirrtari en maður hélt

Ef rétt reynist að þau vogi sér að ætlast til þess að Alþingismenn samþykki þetta kjaftæði óséð!

Þvílík endemis ófyrirleitni og heimska.  Held að þingmenn sem greiða þessum samningi götu, án þess að fá tækifæri til að lesa hann gaumgæfilega með leiðsögn færustu lögspekinga, teldust óhikað þjóðhættulegir landráðamenn!


mbl.is Enskir dómstólar skera úr Icesave-deilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pál og Tryggva úr nefndinni?

Nær væri að þeir ágætu menn hypjuðu sig ef þeirra réttsýni er ekki meiri en þetta.

Það er blátt áfram hlægilegt að menn sem telja sig lærða skuli ekki skynja veruleikann næmar en þetta.

Hvað er að því að rannsóknaraðili hafi myndað sér skoðun á viðfangsefninu eftir að hafa skoðað það? 

Hvernig getur það valdið vanhæfi. Þar að auki hefur verið bent á að hér er ekki um dómstól að ræða!


mbl.is Vildu Sigríði úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tröllskapur og heimska

Að halda ummæli, sem voru almenns eðlis og í sjálfu sér það sem er altalað í heiminum, geri konuna vanhæfa til áframhaldandi setu í nefndinni.

Öðru máli hefði gegnt ef þessi skoðun hennar hefði komið fram fyrir skipun í nefndina, þá mætti til sannsvegar færa að um óheppilega skipun hefði verið að ræða!


mbl.is Brottvikning myndi trufla og tefja störf nefndarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband