Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Bullarar vaða uppi!
27.4.2010 | 11:43
Nöturlegt er að til skuli fólk sem kaupir þetta kjaftæði, að forsetinn einn og sér sé að skaða stórkostlega með því að greina frá í viðtölum við erlenda fjölmiðla því sem hann veit sannast og réttast um íslenska náttúru og þær hættur sem geta af henni stafað!
Þetta hatur , sem síðan er reynt að magna upp á upplognum forsendum um áhrif ummæla hans er aldeilis forkastanlegt. Engar raunhæfar tölur eru til um skaða af völdum þess arna, eða að þau yfirhöfuð valdi skaða. Fréttamennska moggans og upphrópanir ýmissa í stétt ferðaþjónustu jaðra við að varða við lög. Komi þetta fólk bara með grjótharðar sannanir fyrir þessu sem fullyrt er eða heiti ómerkingar og ræflar ella!
Ljóst er að umheimurinn er ekki heimskur, og þær upplýsingar sem fyrir lágu áður en forsetinn svaraði aðspurður eftir bestu getu, hafa auðvitað haft áhrif.
Ég endurtek! Sanniði þetta óvéfengjanlega!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vandlifað fyrir forsetann!
20.4.2010 | 12:15
Gosið nú lítið annað en æfing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Illa gefið undirmálsfólk, eða hvað?
15.4.2010 | 15:07
Að þessi manneskja af öllum skuli voga sér að vera með svona pælingar, nýbúin nánast að skíta á sig með vanhugsuðum vinnubrögðum sem ráðherra!
Ólafur á svosem alveg fyrir því að fá einhverjar ákúrur, en það er vandlifað í hans stöðu. Ekki svo litlar ákúrur hefur hann fengið fyrir að hafa skoðun á stjórnun landsins. En svo þegar karlinn leyfði sér að trúa því að önnur stjórnvöld landsins væru að gera rétt, og telur sér óhætt að hlynna að því, þá fær hann líka á baukinn fyrir að vera ekki gagnrýninn og segja stopp.
Svo kemur á daginn að þetta var allt vitleysa sem hefur rústað okkur fjárhagslega, og blessað fólkið sem þótti hann helvíti gagnlegur að stoppa af gerræðislega lagasetningu Davíðs nokkurs og fylgifiska vill endilega samþykkja umræðulaust að við , þjóðin, tökum á okkur allar þær byrðar sem við mögulega getum á okkur tekið. Virðist helst hafa átt að leyfa kjósendum að svíða sem lengst undan óstjórninni þeirra Sjálfstæðismanna í pólitískum tilgangi, semsagt til að geta reglulega minnt á fyrir hverjar kosningar að þetta væri þeirra arfleifð!
En svo, auðvitað, stóð Forsetinn með þjóð sinni í þetta sinn sem hið fyrra , og lét ekki Gungur þær og Druslur sem lúffuðu fyrir Bretum og Hollendingum troða þessum skít óþvegnum ofan í þjóð sína.
Þá bregður svo við að þessi ómenni fara í hatursherferð gegn þessum sínum fyrrum bandamanni!
Svei þessum pakki, þau eru lítilla sanda og sæva.
Ofbauð viðbrögð forseta Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gnörrungar allra flokka sameinist!
1.4.2010 | 19:50
Hef ekki áhyggjur af því að s.k. grínframboð sem þetta muni standa sig verr við stjórnun sveitarfélaga en þau aulaframboð í raun, sem hingað til hafa víða verið að spreyta sig.
Er ekki augljóst að framboðið er alvöru, þar sem gefin eru loforð um margt furðulegt, en jafnframt nánast lofað að svíkja kosningaloforðin!
Besti flokkurinn fengi 14% og tvo menn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Smalamennska !
1.4.2010 | 14:41
Það er víst ekki síður erfitt að smala hænsnum en köttum, hvað þá fyrir hænsnin í samfylkingunni að smala köttum!
Köttum að smala kúnst er nokk,
krötum það reynist erfið þraut.
Hænsnin þá fara á harðabrokk,
hefja sig upp í efstu skaut.
BYMUR !
1.4.2010 | 14:30
Svo ég falli í þá gryfju sem ég sjálfur hef gagnrýnt aðra fyrir að lenda í, semsagt ótímabæran kjaftavaðal um heiti á hinu nýja, fjalli,felli, hól eða gíg, sem myndast hefur á Fimmvörðuhálsi, þá legg ég til ofanritað heiti.
Þessu heiti hef hvergi fundið stað annarsstaðar en í mállýsku okkar s.k. Tjarnalandsbræðra forðum.
Semsagt BYMUR var uppdigtað heiti okkar á ólmum þarfanautum sem gjarnan drundi í þegar sá gállinn var á þeim. Til mótvægis var kvenkynið BAMA, kýrin.
Hef ekki fundið þetta orð t.d. í orðabanka íslenskar málstöðvar.
Þykir reyndar með ólíkindum að þetta orð, Bymur sé ekki til í íslensku máli.
Bull er þetta!
25.3.2010 | 16:34
Leyfum þessu nú fyrst að verða að einhverju áður en nafn er ákveðið. Á eftir að koma í ljós hvort þetta verður eitthvað meira en smágígur.
Allir endalaust að fara fram úr sér í kringum þetta gos, maður hefur fylgst forviða með hvernig almannavarnarnefndir og önnur stjórnvöld hafa reynt að tala þetta gos upp og gera sem mest úr þeirri "vá" sem fylgir. Blessuð börnin á svæðinu vita ekki sitt rjúkandi ráð og búast við heimsendi!
Fellið gæti heitið Hrunafell | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hagsmunaaðilar ..
24.3.2010 | 10:14
Eiga ekki og mega ekki vera ráðandi í störfum nefnda sem fjalla um og taka afstöðu til kerfa sem fjalla um þeirra sömu hagsmuni. Eðli máls samkvæmt geta þeir aldrei verð ráðandi í svona starfi, þótt sjálfsagt sé að hlusta á þeirra sjónarmið.
Sorglegt er hins vegar að sjá fulltrúa sjómanna gerast handbendi sinna atvinnurekenda með þeim hætti sem fram kemur , vekur grun um auðsveipni við húsbóndavaldið. Svipunni er sveiflað óspart ef þið hlýðið ekki strákar!
Mikið fagnaðarefni að skref skuli loks stigin til að vinda ofan af þessari kvótavitleysu, bent hefur verið á að s.k. fyrningarleið geti verið varasöm , þar sem með henni væri í raun verið að viðurkenna eignarrétt á aflaheimildunum.
Ástæðulaust að fara nokkrar þær leiðir sem viðurkenna slíkt. Þessi réttur sem þessir blessaðir kóngar þykjast einir mega hafa yfir auðlindum sjávar, þ.e. öllu sem lifandi hrærist í sjónum, er sjálftökuréttur og hefur enga eignarheimild myndað.
Nú ríður á að þjóðin þjappi sér um stjórnina í þessu máli, því ekki munu hrunflokkar íhalds og framsóknar vera nothæfir til að vinda ofan af þessu rugli sem hefur líklega lagt grunninn að hruninu.
Fyrirmyndin af hverskonar sjálftöku og ófyrirleitni í viðskiptum.
„Nefndarmenn eru hafðir að fíflum“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Standiði nú í lappirnar!
23.3.2010 | 13:13
Vonandi hefur stjórnin kjark til að takast á við LÍÚ frekjuhundana og aðra óþurftargaura sem gala hátt með þeim s.s. Vilhjálm Egilsson sem virðist hafa tekið að sér að vera einhversskonar Með-Harmagrátur fyrir útgerðaraðalinn.
Ef Stjórn Jóhönnu sýnir hörku gegn þessum frekjudrengjum þá fær hún plús í kladdan. Hennar tækifæri að endurreisa eitthvað af þeim væntingum sem þjóðin hafði til hennar í upphafi en hafa klúðrast í meðförum s.k. Icesave máls, sem og vesældóms í leiðréttingum til handa skuldsettum heimilum.
Sýnum ákveðni og hrifsum til þjóðarinnar aftur réttmæta eign. Látum ekki vargana komast upp með neitt múður. Afgreiðum þá með þjóðaratkvæðagreiðslu ef með þarf!
Ætla að hitta forustu SA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ÁLHER á suðurnesjum ?
20.3.2010 | 22:23
Nú um stundir virðast býsn mikil geta gerst , og það undir styrkri stjórn Steingríms Jóhönnu Sigfúrðarsonardóttur.
Semsé að það að með milligöngu Árna Sigfússonar og Johnsen bjóðist í einum pakka atvinnuuppbygging á suðurnesjum, sem hefur verið efst á óskalista Vinstri manna gegnum tíðina. Nefnilega álver og endurkoma hers í einkareknu formi. Má ekki alveg slá þessu saman og kalla þetta ÁLHER til suðurnesja. !