Skil ekki þetta óðagot!

Horfði á ógeðfellda mynd um iðnað í kringum s.k. staðgöngumæðrun . Peningamenn með græðgisglampa í augum berandi sæðisbrúsa milli landa, frá USA og fleiri löndum til Indlands þar sem konur voru sæddar eins og hver önnur húsdýr og þær síðan geymdar eins og beljur á bás á meðgöngunni. 

Frekar ógeðfellt og andstyggilegt á að horfa. Fengu eitthvað lítilræði fyrir, miðað við hvað dílerarnir hirtu.

Börnin tekin með keisaraskurði þegar einhverjum dólgum hentaði. Ómanneskjulegt hvernig börnin voru svo rifin af meðgöngumæðrunum sem sátu eftir sundurristar með tár á hvörmum.

Nei hér þarf að fara varlega og ekki ana  að neinu. Þetta var hálfu ógeðfelldara en nokkur vændismiðlun fannst mér. 


mbl.is Frumvarp samið um staðgöngumæðrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristin stjórnmálasamtök

Þakkir séu þér, Kristján, að hafa miðlað þessum athyglisverðu upplýsingum hingað á Moggabloggið. –JVJ.

Kristin stjórnmálasamtök, 18.1.2012 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband