Feginn að hafa slitið u.þ.b. 40 ára samskiptum óbermi þetta!

Auðheyrt að hér á ekkert að gefa eftir ótilneyddur!

Lagatæknar liggja líklega næturlangt yfir hvernig megi snúa útúr dómnum bankanum til hagsbóta!

Steig það skref í gær að slíta samskiptum við þessa stofnun sem aðalviðskiptabanka. Er þá að tala um Arionbanka og forverana, upphaflega Búnaðarbanka Íslands, KB banka og Kaupþing banka.

Hef lengi verið með óbragð i munni að eiga samskipti við þessa stofnun ,ekki síst eftir að framsóknardindlar hverskonar og annað vafasamt þý fór að valsa þarna um og misnota eftir eigin behag.

Það sem hefur haldið aftur af mér að segja bless fyrr, er fyrst og fremst ágæt kynni af góðu starfsfólki í útibúinu hér á Akureyri , sem og sú staðreynd sem lengi var ógnandi,- að maður vissi aldrei hvar þessir fjárglæfrakónar væru komnir inn á gafl í þeim bönkum öðrum sem í boði voru.  

Ofurlauna hrokinn í Höskuldi gengur líka fram af mér og hverskonar harðýðgi við útburð vanmáttugra einstaklinga úr húsakynnum sem bankanum hefur tekist að sölsa undir sig á vafasömum forsendum.

Vona að ég sé óhultur fyrir slíku græðgisillþýði í þeim saklausa dreifbýlissparisjóði sem ég veðjaði á, Sparisjóði Höfðhverfinga. 

Leita ég þar til upprunans . því framættir mínar liggja nokkuð í Höfðahverfið!

Langlangalangafi Þorgrímur Brandsson bóndi á Hóli , barnakall og baslari . "Kvaddi hress og kátur í Höfða um hádegisbil , með heypoka á baki,  en fannst um nónbil örendur neðan Sunds". Varð bráðkvaddur við að leita sér hjálpar við að fóðra búpening sinn, 2. Júní 1801. Líklega ekki komin nóg beit á hörðu vori og karlinn orðinn heylaus!

Aðrir Höfðhverfingar  íframættum mínum voru t.d. Oddur Gottskálksson á Grenivík og víðar, Jón Sveinsson í Miðgerði o.fl. o.fl.


mbl.is Fordæmisgildið liggur ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband