Oddur hefur ekki mitt umboð..........

til að taka þátt í þessari endemsivitleysu! 
mbl.is Akureyri tekur þátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf....

að gera alheimsátak gegn hver skonar trúarvitleysu! Þá á ég við að trúfélögum sé gert ljóst að þeirra er ekki neitt veraldlegt vald.

I besta falli sé umborið að fólk stofni felög um líkar lifsskoðanir sem eru á hinu andlega óáþreifanlega sviði, og megi iðka hvers konar tilbeiðslu því tengt, enda sé ekkert það gert sem hróflar við persónubundnum réttindum einstaklinga í viðkomandi söfnuði/trúfélagi , hvað þá þeirra sem utan við standa.

Sömuleiðis séu öll stjórnmálaleg afskipti slíkra söfnuða, á forsendum trúarrita afbeðin algjörlega. Helst stjórnarskrárbundið!


mbl.is Beitti brennheitum járnteini í refsingarskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar viðurlög sem bíta!

Réttast væri að í svona tilfellum væru ákvæði um að krafa rukkarans fyrntist að fullu ef leiðrétting í samræmi við dóm hefur ekki verið gerð innan tiltekins frests, 30-60 daga! Semsagt sorry Drómi, ef þú leiðréttir ekki í samræmi við dóminn , þá skuldar viðkomandi þér núll krónur að þeim tíma liðnum!
mbl.is Hætti að innheimta ólögmæt lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er líklegt ???????

að sá sem tjáir sig undir nafnleynd við blaðamann,....... játi á sig við þann sem um var fjallað, .... að hafa tjáð sig um málefni viðkomandi við umræddan blaðamann????????

Semsagt yfirlýsing Jóns Steinars sannar ekkert!!!!


mbl.is Ræddi ekki við dómara Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum og stundum ekki!

Þessum ágæta þingmanni og hans skoðanabræðrum þótti réttmætt að hæstiréttur á sínum tíma ógilti sk. Stjórnlagaþingskosningu á formsatriðum, án þess að sýnt væri fram á að þau formsatriði hafi skipt máli um niðurstöðu kosninganna.

Nú þykir þessum sömu mönnum það léttvægt að við æðstu yfirstjórn landsins skyldi ekki þess  gætt að fara að því sem þeir kalla formsatriði, jafnvel þótt stjórnarskrá mæli fyrir !!!!!!

Er ekki best að vera samkvæmur sjálfum sér Birgir?


mbl.is Birgir Ármannsson: Fallist á vörn Geirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim er ekki sjálfrátt sumum

Lögfræðingunum sem virðast telja það vera skyldu sína að þóknast fjármagninu á hverju sem gengur. Þessi maður er augljóslega ekki læs í þeim skilningi, að hann hefur ekki raunskilning á hvað skrifaður texti þýðir.

Bið menn að lesa skýringar Ragnars Hall sem og hins ólöglærða Marinós G Njálssonar til að átta sig á því sanna í málinu.

Helvíti hart ef þarf endalaust að fara í ný dómsmál til að fá menn til að virða áður gengna dóma Hæstaréttar!


mbl.is Þeir sem ekki greiddu sitja í súpunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar er fyrsta peðinu fórnað

Og það reyndar réttilega. Nú viljum við sjá Seðlabankastjórann fjúka og auðvitað ríkisstjórnarómyndina..

Hafa þau ekki öll verið í Kastljósi fyrir afglöp í starfi?


mbl.is Forstjóra FME sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Niðurstaðan kostar bankana tugi milljarða"

Segir í frétt á Eyjunni, fréttavef á netinu!

Halló!!!! er enginn heima. Þjófur fer og hirðir eigur annarra ófrjálsri hendi. Til hans næst og viðkomandi neyðist til að skila þýfinu!

Eintómur fjandans KOSTNAÐUR, eða hvað?


Feginn að hafa slitið u.þ.b. 40 ára samskiptum óbermi þetta!

Auðheyrt að hér á ekkert að gefa eftir ótilneyddur!

Lagatæknar liggja líklega næturlangt yfir hvernig megi snúa útúr dómnum bankanum til hagsbóta!

Steig það skref í gær að slíta samskiptum við þessa stofnun sem aðalviðskiptabanka. Er þá að tala um Arionbanka og forverana, upphaflega Búnaðarbanka Íslands, KB banka og Kaupþing banka.

Hef lengi verið með óbragð i munni að eiga samskipti við þessa stofnun ,ekki síst eftir að framsóknardindlar hverskonar og annað vafasamt þý fór að valsa þarna um og misnota eftir eigin behag.

Það sem hefur haldið aftur af mér að segja bless fyrr, er fyrst og fremst ágæt kynni af góðu starfsfólki í útibúinu hér á Akureyri , sem og sú staðreynd sem lengi var ógnandi,- að maður vissi aldrei hvar þessir fjárglæfrakónar væru komnir inn á gafl í þeim bönkum öðrum sem í boði voru.  

Ofurlauna hrokinn í Höskuldi gengur líka fram af mér og hverskonar harðýðgi við útburð vanmáttugra einstaklinga úr húsakynnum sem bankanum hefur tekist að sölsa undir sig á vafasömum forsendum.

Vona að ég sé óhultur fyrir slíku græðgisillþýði í þeim saklausa dreifbýlissparisjóði sem ég veðjaði á, Sparisjóði Höfðhverfinga. 

Leita ég þar til upprunans . því framættir mínar liggja nokkuð í Höfðahverfið!

Langlangalangafi Þorgrímur Brandsson bóndi á Hóli , barnakall og baslari . "Kvaddi hress og kátur í Höfða um hádegisbil , með heypoka á baki,  en fannst um nónbil örendur neðan Sunds". Varð bráðkvaddur við að leita sér hjálpar við að fóðra búpening sinn, 2. Júní 1801. Líklega ekki komin nóg beit á hörðu vori og karlinn orðinn heylaus!

Aðrir Höfðhverfingar  íframættum mínum voru t.d. Oddur Gottskálksson á Grenivík og víðar, Jón Sveinsson í Miðgerði o.fl. o.fl.


mbl.is Fordæmisgildið liggur ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forstjóri FME og Seðlabanka segi af sér strax!

Hlýtur að vera skýlaus krafa eftir að sauðheimskur hluti þingheims klæðskerasaumaði ólöglega löggjöf eftir pöntun þessara aðila.

Ríkisstjórnin setji þá annars af og í kjölfarið biðjist hún lausnar .

 Staða stjórnarandstöðuþingmanna, annarra en Hreyfingarþingmanna og e.t.v. Lilju Mósesdóttur, ef rétt er skilið að hún hafi gengið út í mótmælaskyni við þessi ósköp,  er ekki góð.

Spyrja má hversvegna þeir, þ.á.m. Sigmundur Davíð og Guðlaugur Þór greiddu ekki atkvæði gegn viðbjóðnum?


mbl.is Bankarnir eru vel fjármagnaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband