Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég er svo rasandi hissa!

Hefur fólk ekki enn áttað sig á að þessi s.k. matsfyrirtæki og þeirra álit eru ekki pappírsins virði?

Hvenær hefur nokkuð staðist sem þau hafa spáð fyrir?

Þetta lyktar sem stundum fyrr sem pantað álit , en hverjum hentar að fá slíkt álit?

Eigum við nokkuð að giska?


mbl.is Mjög vond tíðindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margs enn ógetið sem máli skipti!

Eitthvað að róast umræðan um lánamálin, en mér flaug í hug eitt atriði sem mótrök gegn bulli þeirra sem segja lántakendur gengistengdra lána hafa verið varaða við gengisáhættunni áður en lánasamningur var frágenginn. Því beri þeim engin leiðrétting, þetta hafi verið vísvitandi fjárhagslegt harakiri og viðkomandi maklegt að súpa seyðið af ruglinu.

Hins hef ég hvergi séð getið, að fulltrúar lánveitanda hafi bent lántökum á ólögmæti þessara lána, sem þeim auðvitað bar miðað við að sú vitneskja hefur verið fyrir hendi í lánastofnunum frá því lög voru samþykkt þar um 2001. Hér er þegar komin mótrök sem slátra að mínu áliti snarlega hinum.

Hitt kjaftæðið stóðst auðvitað enga skoðun, því tilvitnuð gengisáhætta varð langt umfram það sem nokkrun gat órað fyrir.


mbl.is X-mál og ákærur vegna hruns vofa yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru viðbragðsfljótari ....

En okkar yfirvöld, sem beinlínis aðstoða ræningjana.
mbl.is Bankaræningi handtekinn í Stokkhólmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir vanhæfir á báða bóga ef svona kjaftæði stæðist!

Hvernig er með forstöðumenn þeirra stofnana sem gáfu lánendum tilmæli um að hunsa hæstaréttardóm sem er skýr og afdráttarlaus. Þeir eru talsmenn stofnana sem brugðust eftirlitshlutverki sínu og því vanhæfir að hafa nokkur afskipti af málinu, allra síst á þennan veg. Hvernig er með alla embættismenn og dómara þessa lands, væntanlega allt skattgreiðendur, sem er búið að fullvissa um að ef dómurinn standi, þá komi það við buddu þeirra? Hljóta allir að vera vanhæfir.  Gylfi, Steingrímur og fleiri innanbúðar í stjórninni, bullandi vanhæf, því þau hafa klúðrað málum og vilja núna bjarga eigin skinni á kostnað lántakenda tiltekinna lána.

Allir Íslendingar með verðtryggð lán eru vanhæfir útfrá ýmsum sjónarhornum, því þeim hefur verið talin trú um að þetta sé ósnanngjarnt fyrir þá, og í annan stað, að þetta hljóti að kalla fram "leiðréttingu" þeirra lána líka.

Nei þetta er algjört kjaftæði, en svosem eðlilegt að spurningin komi upp, en fjölmiðlinum sem bar hana fram bar jafnframt að skýra fleiri hliðar málsins og velta upp mögulegu vanhæfi allra íslendinga!


mbl.is Litast ekki af eigin lánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki einhver leið til að kæra þetta sem sakamál. Koma þeim undir lögreglurannsókn!

Með ólíkindum að þjóðin þurfi fyrst að sætta sig við svik þeirra í starfi sem eftirlitsaðila með lánastofnunum ,og svo þegar dómur er fallinn og ofan af svikunum flett, þá geti fulltrúar þeirra sem brugðust ganga í lið með "svikahröppunum!
mbl.is Tala máli kerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níðast á því sem þeim er til trúað!

Nú hafa talað fulltrúar þeirra stofnana sem brugðust þjóð sinni og þegnum með að sinna ekki eftirlitsskyldu sinni gagnvart lánastofnunum ,sem komust upp með það í 8-9 ár að lána ólöglega lán með erlendu gengisviðmiði sem tryggingu og tóku síðan stöðu gegn krónunni svo umrædd lán hækkuðu glæpsamlega.

Nú vilja þessir eftirlitsaðilar sem brugðust svo hrikalega verðlauna brotaaðilann með því að, gegn dómi æðsta dómstóls þjóðarinnar, leyfa þeim að bæta sér upp missi hins ólögmæta gengisgróða með mikið hærri vöxtum en lánaskjöl kveða á um.

Þetta hlýtur að vera fordæmalaus valdníðsla og ekkert annað! Lögleysa!


Þar kom það!

Stendur ekki á blessuðum Gjaldþrotabankanum að taka stöðu með þeim sem þeir meta sterkari.

Dæmigert fyrir fyrrverandi róttækan "vinstri" mann.


mbl.is Miða við lægstu vexti á hverjum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þökk sé Vilhjálmi, hann er annar af kannske 2 alvöruverkalýðsleiðtogum landsins!

Hinn er Aðalsteinn á Húsavík, enda þeir sem ASÍ vill nánast þagga niður í og einelta úr sínum húsum.

En allt sem haft er eftir Vilhjálmi í þessari frétt er aldeilis eins og talað út úr mínum munni!


mbl.is Segir „sveiattan" við málflutningi Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efast um dómgreind Jóns Steinssonar?

Það sem gleymist ítrekað hjá þessum snillingum sem gagnrýna niðurstöðu dómstólsins, er sú staðreynd að lánastofnanirnar eru gerendur glæps, brotlegi aðilinn. Það er því eðlilegt að þær beri skaða. Blessaðir einfeldningarnir fjalla um þetta eins og um saklausa sveitadrengi sé að ræða ,sem fái ómaklegan skell.  Lántakendur sk. gengistryggðra lána hafa þolað margt mótlætið vegna þess arna og því mega þeir  ekki fá einhverja umbun á móti ?

Samlíking: Ökumaður ekur bíl sínum drukkinn og lendir í árekstri, veldur öðrum ökumanni tjóni og eyðileggur sinn eigin bíl. Nú er víst næsta líkleg niðurstaða dóma í slíku máli að hinn drukkni ökumaður telst hafa fyrirgert rétti sínum til bóta fyrir sitt eigið ökutæki, og að auki skal hann venjulega greiða úr eigin vasa allan skaða hins. 

Upphafið að þessum árekstri var sá að aðilar mæltu sér mót á ákveðnum stað, en hinn ódrukkni vissi ekki,eða mátti vita , að félaginn væri óökufær og ólöglegur til aksturs. Hvort sem hann lagði að þeim drukkna að koma eða atvik voru á hinn veginn, að sá drukkni heimtaði stefnumótið, þá fengi sá drukkni ekki bílinn sinn að nokkru leyti viðgerðan nema á eigin kostnað, fyrir utan auðvitað að missa bílprófið!


mbl.is Efast um íslenska lögfræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er Gylfi endanlega orðinn ómerkingur!

Menn héldu að AGS væri með þumalskrúfur á karlinum ef hann ónýtti ekki líklega réttarbót hæstarréttar, en hér er endanlega staðfest að hann er að ljúga að allt fari á hliðina ef  réttarríkið fær að virka, og réttlætið fram að ganga!
mbl.is Kreppunni lokið segir AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband