Sjálfvirk launahringekja Seðlabankans!
7.6.2007 | 11:15
Frábært kerfi sem Davíð og félagar hafa komið sér upp í launamálum!
Þegar þá langar sjálfa í launahækkun, er ekki annað fyrir þá að gera en hækka næstráðendur sína duglega í launum. Hitt kemur svo í framhaldinu að bankaráðið fer þá að skammast sín fyrir hvað blessaðir Stjórarnir eru illa launaðir miðað við næstráðendur. Þeir hrista af sér slyðrorðið og hækka þá duglega í launum, líklega óumbeðið, því þetta er soddan skömm að þeir hafi ekki nema 2-300 þúsund króna forskot á hina. Þeir eiga sko sannarlega skilið að fá 100 þúsund krónur i laun fyrir hvert prósentustig sem stýrivextirnir hækka!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er nú það minnsta sem að við getum gert fyrir þessi grey, ekki eru eftirlaunin neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Greyin litlu!
Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.