Nánast alþjóð, jafnt lærðir sem leikir , virðast sammála um að launakjör ljósmæðra séu ranglát miðað við menntun og ábyrgð þeirra í starfi!
En, ótrúlegasta fólk virðist tilbúið að fallast á að ekki sé hægt að leirétta þetta ranglæti nema í áföngum.
Sambærilegt væri líklega maður sem hefði verið ranglega dæmdur til fangavistar , að ekki væri hægt að veita honum frelsi nema í áföngum þegar hann ljóst væri að hann hafi hlotið óréttlátan/rangan dóm og sýknun átt sér stað!
Hvað er heilbrigðiskerfið búið að spara gegnum tíðina með því að vanmeta störf þessarar stéttar, og neita henni um leiðréttingu þegar betur áraði?
Hversu mikið meira er til skiptanna í kerfinu ,vegna þessara vangreiddu launa.
Mér finnst eðlilegt að verða við kröfum ljósmæðra nú þegar, og prísa okkur sæl fyrir að þær fari ekki fram á afturvirka leiðréttingu til margra ára!
Ljósmæður! Ekki gefa þumlung eftir fyrir hálaunuðum lágmennum hins heillum horfna dýralæknis!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Tek algjörlega undir þetta með þér Kristján minn Heyr Heyr..
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.9.2008 kl. 12:26
Heyr heyr , er svo sammála þér pabbi!!
Magga (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 21:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.