Einstakt dómgreindarleysi!

Að hann Björn skuli ekki átta sig á vanhæfi sínu í þessu máli!

Í ljósi þess að stærstur hluti þessara hlerunarmála eiga sér sennilega upptök í ráðuneyti og eða stjórnsýslustofnunum sem lutu yfirstjórn föður hans, Bjarna Benediktssonar, og þannig á hans ábyrgð, hver sem vitneskja hans hefur verið um aðgerðir hverju sinni.

Þar af leiðandi á ekki nokkur maður svo mikið sem hlusta á píp Björns um þessi mál, tali hann sem dómsálaráðherra um þau.

Honum ber auðvitað að segja af sér sem slíkur gagnvart allri umfjöllun um þessi mál.

Hitt er svo önnur saga og auðvitað ekki nema mannlegt ,að hann reyni að bera blak af föður sínum, ef verið er að ásaka hann um að hafa farið fram ólöglega gegn samborgurum og samþingsmönnum sínum mörgum, að þessu leyti.

Honum ber þá að gera það sem óbreyttur Björn Bjarnason .


mbl.is Símhleranirnar voru ekki ólöglegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg sammála þér hérna.  Það er í rauninni ömurlegt hve oft ráðamenn koma að málum sem þeir eru í rauninni vanhæfir til að vinna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Algerlega sammála þessu sjónarmiði.

Björn hefur sýnt að hann er ekki alveg að ná hlutunum.  Við hin ætlumst til þess að dómgreind yfirmanns dómstóla og löggæslumála sé nokkurn vegin yfir það hafin að vera dregin í efa . . . . . .

... ekki síst á þessum síðustu og verstu tímum....

Benedikt Sigurðarson, 29.9.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband