Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Indriði H Þorláksson http://inhauth.blog.is/blog/inhauth/entry/206789/ afhjúpar lygar stjórnarflokkanna í skattamálum á bloggsíðu sinni undanfarin dægur.
Staðfestir þar með það sem meirihluti þjóðarinnar hefur fundið á eigin buddu, og stjórnarandstaðan staðfastlega haldið fram sem og ýmsir sérfræðingar.
Maðurinn er nýlega hættur sem Ríkisskattstjóri þjóðarinnar og verður varla vændur um að fara með rugl!
Öruggari leið að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn!
11.5.2007 | 11:57
Góðra gjalda verð ábending hins ágæta Jóhannesar í Bónus, að menn sýni Birni Bjarnasyni stórafingurinn með útstrikun í kosningunum á morgun, en jafnframt er fólki bent á að þetta hefur því miður aldrei virkað til að koma mönnum út af þingi.
Miklu öruggara er að kjósa annað framboð í því sama kjördæmi, og bendi ég fólki sérstaklega á F listann, lista Frjálslyndra , þar sem Jón Magnússon er í forystu. Get nokkuð ábyrgst að þar fengjum við mann sem gæti fyllt stól Björns í dómsmálaráðuneytinu án þess að vera með einhverjar hermennsku- og hlerunargrillur.
Hvað þá að leggja viðskiptajöfra í einelti með handstýringu úr ráðuneytinu!
Er Geir ekki veiklyndur vingull? Þorði ekki að rísa gegn ofstjórn fyrirrennara sinna!
11.5.2007 | 11:15
Geir Haarde sýnist jú flestum ver frekar geðþekkur einstaklingur ,með frekar traustvekjandi framgöngu að jafnaði, og út á þetta gera Sjálfstæðismenn helst í kosningabaráttu sinni!
En er raunveruleikinn alltaf sem hann virðist? Ef menn kynna sér sögu þessa stjórnarsamstarfs sl. 12 ár , þá kemur á daginn að Geir hefur ekki reynst trausts verður.
Hann virðist ekki hafa gert neina tilraun til að stoppa af gerræðisleg vinnubrögð þeira Davíðs og Halldórs. Og þannig í raun gerst samábyrgur fyrir ruglinu í þeim.
Minna má á að Geir sem fjármálaráðherra hóf og markaði stefnuna í aðför ríkisins til að ná lendum bænda undir ríkið. Sýnir að hann ber ekki mikla virðingu fyrir eignarrétti einstaklinga!
Ætlum við að endurkjósa vafasamt fólk til að ráða málum okkar áfram?
11.5.2007 | 00:32
Á laugardaginn stöndum við frammi fyrir einhverjum afdrifaríkustu kosningum Íslandssögunnar. Skv. skoðanakönnunum erum við á þröskuldi þess að steypa þeirri stjórn af stóli sem með hvað mestri lítilsvirðingu hefur umgengist stjórnarskrána okkar , og líklega brotið hana beinlínis með umgengninni um ákvæðið um málskotsrétt Forseta Íslands. Þá tóku tveir herramenn sér það bessaleyfi að gera okkur aðila að hernaðarátökum gegn fullvalda þjóð sem ekkert hafði á okkar hlut gert, án þess að bera það undir lögákveðnar stofnanir lýðveldsins.
Þótt þessir vafagemlingar séu ekki lengur í framboði eða í trúnaðarstöðum fyrir Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk, eru enn í framboði nokkur hluti þeirra þingmanna sem gerðust samsekir þeim um óhæfuna, og brugðust þjóð sinni ,með að leggja sig ekki fram um að stöðva vitleysisganginn, en til þess höfðu þeir sterka stöðu því enginn er foringi án stuðnings sinna liðsmanna.
Hvernig getum við treyst þessu fólki aftur, sem svo hrapalega brást á ögurstundu?
Ódámar Austurlands álasa Ómari !
9.5.2007 | 22:52
Og fyrir hvað! Jú að spilla landi sem Landsvirkjun er að sökkva! Er hægt að leggjast lægra!
Orðstír hans ei mun deyja,
Ómar mun þorrann þreyja.
Lágmenni landsins geyja,
löngum að þessum peyja.
En í guðanna bænum, setjiði samt frekar X við F.
Það hefur jafnan reynst mér best að þykjast bara ekkert skilja!
8.5.2007 | 22:25
Saga er sögð af af einum ágætum fyrrverandi afgreiðslustjóra Flugleiða í innanlandsfluginu hér í den, sem var að setja eftirmann sinn inn í starfið. Þegar þar var komið sögu hvernig bregðast skyldi við kvörtunum erlendra farþega vegna tilfallandi vandræða,kom eftirfarandi heilræði:
"Það hefur jafnan reynst mér best, að þykjast bara ekkert skilja!"
Manni verður stundum hugsað til þess arna , þegar forkólfar annarra flokka en Frjálslyndra fjalla um s.k. Færeysku leið og fiskveiðiráðgjöf byggða á kenningum Jóns Kristjánssonar fiskifræðings!
Grunnurinn í þeirri ráðgjöf er sú ,að fiskistofnar eru háðir náttúrulegum sveiflum sem tengjast breytileika í skilyrðum í hafinu og hefur lítið með veiði að gera . Línurit gerð eftir áratuga eða allt að aldargömlum heimildum um fiskveiði t.d. við Færeyjar og Ísland sýnir að þessar sveiflur hafa alltaf verið fyrir hendi, og þar kemur t.d. fram að lægðirnar hafa jafnvel stundum komið í kjölfar aðstæðna sem hafa leitt til lítillar sjósóknar. s.s heimstyrjaldanna . Línurit sýnir sömuleiðis að síðan við losnuðum við Breta og aðra erlenda aðila af fiskimiðunum við landið, hefur kúrfan með eftirtektarverðum hætti legið niður á við.
Skýringin er auðvitaðð sú, að eftir að veiðistýringin hófst, hafa hafsvæðin að einhverju leyti verið ofsetin. Ekki er fæða í hafinu fyrir alla þá fiska sem Sjávarútvegsráðherrar Íslands vilja gjarnan friða til áframeldis og síðari veiða. Þar við bætist líklega ofveiði á loðnu og ýmsum smáfiskum sem er gjarnan í fæðukeðju þorsksins t.d. Þessi fiskur sveltur því og bætir ekki við sig í þyngd ,eða hreinlega drepst og verður því ekkert frekar til skiptanna þegar til á að taka. Þegar ráðherra leyfir mönnum að fara að veiða þennan sparifisk, þá er hann annaðhvort dauður eða við hungurmörk.
Lærdómurinn er sá að við geymum ekki fisk í hafinu uppá þau býtti að geta gengið að honum vísum til veiða síðar!
Kristján Þór Júlíusson þóttist sniðugur að bregða fyrir sig þessu skilningsleysi í umræðum um atvinnumál og.fl. í sjónvarpsþætti með frambjóðendum allra flokka sem sendur var út frá Egilsstöðum í kvöld. Hélt sig geta mátað Sigurjón Þórðarson í umræðum um sjávarútvegsmál með að benda á að afli við Færeyjar væri í mikilli lægð eftir nokkurra ára ráðgjöf Jóns Kristjánssonar. Reyndi að kenna of mikilli sókn um.
Staðreyndin er hinsvegar sú að þetta er bara ein af náttúrulegu niðursveiflunum sem alltaf hafa verið og veiðin er augljóslega aftur á uppleið!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar óttinn við"FLOKKINN" ræður ríkjum!
8.5.2007 | 12:58
Einhver snautlegustu svör sem hafa verið gefin í undanfara þessarar kosningabaráttu og meðan hefur staðið, eru staðlaðir frasar s.k. Sjálfstæðisfólks, sem aðspurt hvort rétt hafi verið ákvörðun þeirra ofstjórnarmannanna, Davíðs og Halldórs, að gera Íslenska þjóð samseka í innrásina í Írak!
"Já, miðað við þær upplýsingar sem fyrir lágu"
Nú var það svo, að miklar brigður voru á þeim tíma bornar á þessar upplýsingar sem Busharar báru á borð, án þess að bíða eftir niðurstöðum Hans Blix og félaga sem sögðu minni líkur fyrir að þarna fyndust gereyðingarvopn. En allt kom fyrir ekki Bush-sleikjunum þótti svo mikið liggja við að þóknast þeim herra , að ekki þótti ástæða til að bera þetta undir til þess kjörin stjórnvöld hér heima. Heldur treyst á að hægt yrði að beygja í duftið efasemdamenn í eigin röðum , eins og kom á daginn.
Spurningin er fyrir þessar kosningar:
Getum við sem þjóð treyst þessu fólki áfram til að fara með málefni íslenskrar þjóðar? Fólki sem hafði ekki þor til að mótmæla gerræðislegum gjörningi tveggja manna . Gjörningi sem allavega jaðrar við landráð,er líklega landráð, sem brot gegn íslenskum þjóðarvilja.
Þeir tóku sér vald sem þeir formlega höfðu ekki undir þessum kringumstæðum. Ekkert kallaði á svo skyndilega ákvörðun um þetta málefni, að ekki væri tími til að bera þetta undir utanríkismálanefnd, og eða Alþingi sjálft!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Valdið spillir, og þeim mun meir sem lengur er setið
7.5.2007 | 00:14
Þótt litlar væru ávirðingar á núverandi stjórn væri samt nauðsyn að gefa þeim frí.
En það er nú ekki aldeilis að ekki sé af nógu að taka með afglöpin!
Aðför að öryrkjum og eldri borgurum.
Þjóðinni att í stríðsþátttöku með ákvörðun tveggja manna sem ekkert umboð höfðu til þess.
Aðför að Stjórnarskránni og forsetaembættinu sem stappaði nær landráðum, í kjölfar fáránleika farsa með s.k. fjölmiðlafrumvarp.
Þjóðlendumál, þar sem farið er fram með hörku gegn þinglýstum eignarréttindum, og það af fjármálaráðherrum flokks sem þykist vera sérstakur málsvari einkaeignarréttarins, en þar hangir auðvitað annað á spýtunni!
Bankasala á gjafaprís til sérvalinna flokksgæðinga.
Kárahnjúkavirkjun og álver keyrt áfram með óeðlilegum flýti, þar sem ekki var nógu vel vandað til undirbúnings.
Aukin skattheimta sem auk þess kemur þyngra niður á þeim sem minna hafa handa milli.
Byrgishneykslið og margt fleira.
Stór hluti þessara hneykslismála koma upp á seinni hluta valdaferils þessarar stjórnar. Skyldi það vera tilviljun? Held ekki!
Þetta er frekar vísbending um að valdið spillir og þeim mun meir sem lengur er á hendi sömu manna.
Hvað sem sagt er um stjórnarandstöðuflokkana, getur ekki verið verra að þeir fái tækifæri til að spreyta sig á landsstjórninni næstu 4 árin. Áhættan er miklu meiri að framlengja líf þessarar hrokafullu einkavinavæðingarstjórnar sem virðist stefna að því leynt og ljóst að koma auðlindunum sem flestum í hendur vildarvina, sem verða handvaldir af formönnum Framsóknar og Íhalds. Vatnið og jarðhitinn er í húfi og flest þau náttúrugæði sem menn sjá að hægt sé að fénýta.
Ég skora því á alla hugsandi kjósendur að kjósa gegn sitjandi stjórn. Setjum X við F.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Að skipta um skoðun eður ei!
5.5.2007 | 22:14
Allir hægri sinnaðir brandarakallar landsins hamast nú við að gera Steingrím Joð hlægilegan vegna aðdáunar hans á uppbyggingu bjórverksmiðju við Eyjafjörð. Og ástæðan sem talin er gera "Grimma" broslegan, er að hann barðist gegn bjórnum á sínum tíma.
Þetta skilja ekki einfaldir íhaldsmenn! Að einhver geti tekið sönsum. Þeim er alveg fyrirmunað það sjálfum, s.b.r. að þeir geta ekki getað annað en argast útí Ólaf forseta ár og síð vegna þess að þeir kusu hann ekki sjálfir!
Þroskaðir menn hinsvegar taka slaginn og berjast fyrir sannfæringu sinni meðan tími er til, en beygja sig svo fyrir þeim veruleika sem ofaná verður, svo fremi það sé ekki einhver augljós glópska.
Það á við í þessu tilfelli . Ekki sýnt að bjórinn hafi verið landanum skaðlegur, og því ekki ástæða til annars en að taka honum sem orðnum hlut!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stjórnarflokkarnir auglýsa sig á kostnað skattborgaranna!
5.5.2007 | 17:35
Nýbirt og leiðrétt úttekt á auglýsingakostnaði flokkanna, sýnir að Framsókn hefur ekki lengur forystuna í eyðslunni þar og Íhaldið svarta rekur lestina sem fyrr.
Augljós ástæða ,að þessir flokkar hafa tök á að auglýsa sig á kostnað ríkissjóðs , þ.e.a.s. umfram hina. Varla líður sá dagur að ekki sé tilkynnt um þennan eða hinn samninginn borgurum til hagsbóta.
Ekki nema gott eitt um það að segja í sjálfu sér, en einkennilegt ráðslag að geta ekki gert þetta aðeins fyrr,á meðan menn hafa sjálfir stöðu til að takast á við kostnaðinn. Ekki bara samþykkja víxla inn í framtíðina.