Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ekki upplitsdjarfur LÍÚ formaður, enda málstaðurinn slæmur!
22.5.2007 | 23:38
Frekar hvimleitt að þurfa að hlusta á fjandans bullið í fulltrúum sægreifanna, ódámum íslenskra sjávarbyggða, að þykjast ekki sjá samhengið milli hins ólánlega kvótakerfis og ógæfu margra sjávarbyggða hringinn í kringum landið. Kvótakerfis sem sannanlega hefur ekki byggt upp veiðistofnana, nema síður sé!
Björgólfur Jóhannsson var í hlutverki hins ótrúverðuga talsmanns vitleysunnar ,sem þjónar aðeins hagsmunum umbjóðenda hans en ekki þjóðarinnar í heild, í Kastljósþætti á móti Grétari Mar í kvöld.
Heyra svo þessa menn gefa í skyn að engar tækniframfarir hefðu orðið í greininni ef þetta fjandans afætukerfi hefði ekki komið til. Bull !
Það blasir auðvitað við hverjum skynsömum manni, að auðveldara yrði að endurreisa veiðar og vinnslu í plássi þar sem einn rekstraraðili fer á á hausinn, ef ekki þarf hverju sinni að kaupa veiðiheimildirnar dýrum dómum á uppsprengdu ofurverði sem er komið langt fram úr því sem raunhæft getur talist. Greiða þannig óverðugum offjár fyrir að fá að stunda þann rekstur áfram sem grundvallaði byggðina frá upphafi vega.
"Uss,ekkert að marka, þau geta alveg verið í sundskýlum".
20.5.2007 | 00:09
Datt í hug gömul saga af einum gömlum sveitunga mínum forðum, þegar menn velta fyrir sér hvort ekki sé alvara á ferðum í bólförum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.
Karlinn ,sem var einhleypur bóndi og ekki mikið við kvenfólk kenndur, en þóttist vita helstu undirstöðuatriðin í samskiptum kynjanna, fór með nokkrum yngri mönnum í bíó , að sjá hina "djörfu" mynd, á þeirrar tíðar mælikvarða, 79 af stöðinni. Þetta mun hafa verið um eða eftir 1960, í upphafi Viðreisnar, og mig hálfminnir að talað hafi verið um að bíómiðinn kostað svipað og kíló af smjöri og þótti dýrt á þeim tíma.
Þegar hæst stóð leikurinn í rúmsenu myndarinnar með leikurunum Gunnari Eyjólfssyni og Kristbjörgu Kjeld , sem að þeirrar tíðar hætti fór að mestu fram undir sæng, heyrðu félagarnir að hnussaði í karlinum!
"Uss , ekkert að marka ,þau geta alveg verið í sundskýlum".
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Raufarhöfn 2003,Flateyri 2007.
19.5.2007 | 22:31
Skyldi það vera tilviljun að tilkynnt er um hrun útgerðar og fiskvinnslu í þessum sjávarútvegsplássum "korteri" eftir kosningar?
Eftir að ósannindamenn á vegum stjórnvalda hafa enn og aftur dásamað hið stórkostlega fiskveiðistjórnunarkerfi okkar í aðdraganda alþingiskosninga, hendir það nú enn og aftur í kjölfar þeirra að hrun verður ljóst í greininni í lítilli sjávarbyggð á landsbyggðinni og atvinnulíf þar með í rúst á staðnum.
Er það algjör tilviljun að þetta sé ekki tilkynnt fyrr en að kosningum loknum í báðum tilfellum?
Völva Vikunnar gerði frekar ráð fyrir DV stjórn!
18.5.2007 | 00:31
Var að lesa yfir Völvuspána síðustu, og komst þá að því að mig misminnti um að hún hefði spáð D-S stjórn. Líklega var það önnur völva, hugsanlega á vegum Hér og nú.
Margt fer býsna nærri hjá Völvu Vikunnar um niðurstöður kosninganna, en þó ekki allt nákvæmt.
Gengur út frá tveggja flokka stjórn undir forsæti Geirs, en telur það verða annað hvort með Vinstri grænum eða jafnvel Framsókn áfram! Nú er auðvitað ekki öll nótt úti enn fyrir þessari spá, þótt líkurnar séu á þessari stundu nokkuð sterkar fyrir að Samfylkingin hafi betur.
Þá telur völvan að tími Björns Bjarnasonar sé liðinn sem stórkanónu í Íslenskri pólitík.
Vangaveltur hafa verið hjá ýmsum um að Geir verði að hafa Björn áfram í ráðherraliðinu til að sýna "auðmanninum" Jóhannesi í Bónus í tvo heimana, en spyrja má sig að því hvort Geir væri ekki þannig að sýna stórum hluta kjósenda flokks síns fingurinn. Ef hann hleður undir þá þingmenn sem fá slíka útreið hjá eigin kjósendum!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sérkennilegur málflutningur Kolbrúnar Bergþórsdóttur!
16.5.2007 | 23:15
Var að horfa á Kolbrúnu og Ólaf Teit ræða stjórnarmyndunarmál. Kolbrún tók upp þykkjuna fyrir Ingibjörgu Sólrúnu vegna sífellds skítkasts Sjálfstæðismanna að henni, sem auðvitað er innistæðulaust, og ég er sammála henni í því.
En svo kom þar sögu ,að nefnd var hugmynd sem farið er að slúðra um ,og talið áhugamál Davíðs Oddssonar og fleiri "hatursmanna" Ingibjargar . Sú er að kippa Frjálslyndum í stjórn til viðbótar við Framsókn til að styrkja hana og minnka vægi einstakra þingmanna.
Þá kom þessi innistæðulausa yfirlýsing frá Kolbrúnu um að þar væri ekki nokkrum manni treystandi!
Hvað hefur hún fyrir sér í því? Hafa þingmenn Frjálslynda eitthvað til saka unnið? Kolbrún verður að rökstyðja sín orð, annars er hún á sama plani og Óvildarmenn Ingibjargar Sólrúnar!
Er hægt að vera ómálefnalegri en þetta ,að kasta einhverjum skít að mönnum sem ekki hafa neitt til saka unnið?
Geir dregur Framsókn á asnaeyrum meðan hann leggur grunninn að stjórn með Samfylkingu!
15.5.2007 | 20:23
Öllum augljóst sem með fylgjast að Geir er að halda Framsókn við efnið, svo hún bíti ekki á agnið hjá Vinstri flokkunum um s.k. Vinstri stjórn.
Á meðan eru Geir og Ingibjörg Sólrún á fullu að vinna að stjórnarmyndun bak við tjöldin!
Getum held ég reiknað með að Völva Vikunnar hafi séð þetta rétt fyrir um áramótin!
Unga fólkið í Framsókn vill síður láta gamla settið blóðmjólka flokkinn í þágu eigin valdagræðgi!
15.5.2007 | 15:26
Hef heimildir fyrir því að unga fólkið í flokknum berjist gegn áframhaldandi stjórnarsetu með íhaldinu, en gamla settið sé þarna ,eins og á fleiri sviðum skítsama um framtíð flokksins ,bara ef þau fá að sitja að kjötkötlunum eins lengi og sætt er.
Svipað og í umhverfismálunum. Ekkert hugsað um framtíðina, bara urga allt niður í bera klöpp í þágu einnar kynslóðar. Skítt með þá sem eiga að erfa flokkinn og landið!
Því ekki að láta einu sinni reyna á minnihlutastjórn.
14.5.2007 | 14:06
Gæti orðið spennandi kostur einu sinni að láta reyna á samstarf t.d. S og V, með hlutleysi B og F.
Gæti verið gaman að sýna D fram á að þeir séu ekki með of sterka stöðu:)
Hræðsluáróður gegn Íhaldslausri stjórn !
12.5.2007 | 12:20
Hryggjarstykkið í áróðri Sjálfstæðismanna fyrir þessar kosningar er sú að mikil skelfing sé að við fáum aftur s.k. Vinstri stjórn. Þannig skilgreina þeir stjórnir sem þeir sjálfir eru ekki aðilar að.
Sjálfur var ég fylgjandi D flokksins til skamms tíma , og á þeim tíma frá u.þ.b. 1971 til 1991, sem var sá tími sem ég var að stofna mitt heimili og koma börnum á legg, stofna mitt bú í sveitinni og semsagt miðhlutinn og blóminn af mínum lífshlaupi, voru s.k. vinstri stjórnir meira og minna við völd.
Þegar ég lít yfir farinn veg, get ég samt ekki skrifað uppá að þetta hafi verið eitthvað erfiðari tímar að stofna bú og ala upp börn, heldur en mér virðist í dag.
Ég að vísu, sem sannkristinn sjálfstæðismaður trúði þessu þá ,að það yrði ávísun á betri tíð ef flokkurinn minn kæmist til meiri áhrifa í landsstjórninni. Flokkurinn minn studdi að vísu með ráðum og dáð ýmsar þær aðgerðir sem rústuðu atvinnufrelsinu til lands og sjávar, og gróf þannig undan minni lífsafkomu í sveitinni, en ég auðvitað taldi mér trú um að þetta væri ill nauðsyn vegna málamiðlana við aðra flokka þá sjaldan þeir komust í stjórn á tímabilinu.
Loks komu þau tímamót 1991 að flokkurinn fékk sterkan foringja og komst til áhrifa. Þá höfðu reyndar s.k. vinstri stjórn ríkt ,og svo einkennilega tókst til að verðbólgan hafði náðst niður umtalsvert er hér var komið sögu . Nú hélt ég að allt yrði á betri veg, en öðru nær. Ekki bólaði á auknu atvinnufrelsi,nema síður væri. Kvótakerfi til lands og sjávar fest í sessi, og sovésk handstýring atvinnuveganna heldur hert.
Barnabætur markvisst skertar með auknum tekjutengingum og það á þeim tíma þegar börnin voru orðin unglingar og ennþá dýrari í rekstri.
Gott svar við bullinu í Birgi Ármannssyni vegna greina Indriða fv. ríkisskattstjóra.
11.5.2007 | 22:32
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rakst á þetta í athugasemdadálki hjá Birgi Ármannssyni http://birgir.blog.is/blog/birgir/entry/207208/ sem er að bregðast við bloggi hjá Indriða H.Þorlákssyni . Leyfi mér að vekja hér frekari athygli á góðri hantéringu á bullinu í Birgi!
"Ég er alveg gáttaður á þessari grein þinn og á hvern hátt þú getur nálgast þetta og komið síðan fram með þessa niðurstöðu. Þvert á niðurstöðu manns sem eytt hefur mestum parti ævi sinnar við fjárlagagerð og skattheimtu og er mjög gegn og grandvar maður. Ég er gamall og flokksbundinn Sjálfstæðismaður, hef alltaf haft að heiðri þær hugmyndir sem flokkurinn var upphaflega stofnaður um. Frelsi einstaklingsins og einkaframtaksins. Því miður verð ég að segja að þið þessir ungu menn hafið ekki þá hugsjón sem við hinir eldri höfðum. Þið setjið allt á ríkisreksturinn, aukið útgjöldin, sem nú nema 42% af landsframleiðslu og er það met ef ég veit rétt. Bruðlið með almannafé og hafið lítið vit á rekstri, enda enginn ykkar komið nálægt rekstri eða migið í saltan sjó eins við köllum það hérna.
Ég er búinn að fá nóg af þessari þvælu ykkar um bættan hag, veit það sjálfur hvernig mín kjör hafa rýrnað á undanförnum árum. En lygina má lengi reyna, það lengi að hún verði álitin sannleikur. Helst fer ég að hallast að því að þið farið að slá út mesta lygamörð sögunnar, sjálfan Göbbels.
Það er ekki nógu góð stjórnun á fjármálum ríkisins og skattbyrðinni er ekki réttlátlega dreift. Verðbólgan er komin úr böndum, mælist nú yfir 6%, þrátt fyrir 9% styrkingu kr. frá áramótum og afnám vsk. og vörugjalda. Nær væri að ætla að verðbólgan væri 15%, sérstaklega þegar verðbólgan fer af stað og Hrunadansinum lýkur. Já Birgir þetta er Hrunadans, ég er gamall rekstrarmaður, þekki pólitíkina vel og veit að þið siglið of nærri landi á fullum seglum með áhöfn ´sem er mismunað. Öll teikn segja manni að það þurfi að rifa seglin, færa sig dýpra og sætta áhöfnina. Svo einfalt er það. En þið berjið hausnum enn við steininn og því miður hefur það leitt til þess að mitt atkvæði lendir í fyrsta skiptið ekki hjá mínum gamla flokki."
Kv.
Hagbarður