Draumur um betri tíð?

Mig dreymdi óvenju skýran draum í nótt. Sólveig Pétursdóttir fráfarandi forseti alþingis mætti á minn vinnustað og var að  taka að sér starf ræstitæknis hér á flugvellinum á Akureyri.

 Óljóst fannst mér að það ágæta starfsfólk sem er fyrir í þessum störfum hafi verið að hverfa til annarra starfa , jafnvel stjórnunarstarfa!

Sólveig var hinsvegar augljóslega ánægð með nýja starfið og virtist vilja sinna því með bros á vör!

Skyldi þetta vita á hrein stjórnarskipti eftir kosningar?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guðir láti gott á vita.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2007 kl. 19:15

2 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Skal tekið fram Ásthildur, að þau eru þrjú sem sjá um umhirðuna á flugstöðinni eins og er.(Eins og og stjórnarandstöðuflokkarnir). Maður telur Sólveigu í raun fulltrúa beggja "Framsóknarflokkanna".

Kristján H Theódórsson, 17.4.2007 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband